22. maí 2007 klukkan 12:33
Ég held að málið sé að blogga sjaldan því þá hefur maður svo mikið frá að segja. En það er hellingur að frétta! Veit ekki alveg hvar ég á að byrja og í hvaða röð, ég á líka pottþétt eftir að gleyma að segja frá einhverju mikilvægu en það verður bara að hafa sig.
Eftir síðustu önn ákváðum ég og Ársæll að við urðum að fara eitthvað í frívikunni minni. Við fórum á netið 3 dögum áður en við ætluðum að fara til að reyna finna eitthvað spennandi. Þar fundum við ferð til Tyrklands í viku á 5 stjörnu hóteli (all included) á skid og igenting, ofcourse var pantað J EN....
Ferðin alveg glötuð : 
Sundlaugin var skítug
Rúturnar lélegar og landslagið óspennandi

Mikil vindur og kaldur sjór á ströndinni

Samt frekar heitar gellur

Stórhættulegar skellinöðrur

Fólk í fyrirsætuleik

Ljótar tásur fyrir manni allan daginn

Reyndar eitthvað af sætum strákum

Lélegir veitingastaðir

Vondir vegir og ekkert að sjá

Vondir bílstjórar

Eina jákvæða var slökkviliðið...semsagt hann sem er fyrstur að brjóta glerið.
Við vorum ekki sátt
Allavega eftir ferðina byrjaði alvaran aftur. Ég er í dönskum kúrs núna sem er svaka spennandi. Verkefnið í áfanganum er að hanna Carlsbergsvæðið og ég er búin að vera drekka fullt af bjór til að fá innblástur. Ég skil dönskuna ágætlega og get talað hana svona sæmilega en í fyrsta tímanum átti maður að skrá sig í hóp upp á töflu og ég var með þeim síðustu að skrá mig og það var bara laust í einum hóp svo ég ritaði nafnið mitt þar. Eftir tíman hitti ég hópinn sem ég þarf að vera með í öllum áfanganum, viti menn þá lendi ég í sænskahópnum!! Allir Svíar og einn Nossari (6 manns). Þar er sko ekki talað dönsku, heldur auðvitað sænska og öll verkefni skilað að sænsku líka. Ég skildi ekki bofs fyrstu dagana, en er farinn að skilja sæmilega núna en ég má alls ekki mæta þreytt í skólann því þá er ég alveg úti á þekju. Bara gaman að því!!
Hvað meira hmm...
Já ég keypti mér árskort í tívolí (en ekki hvað), ekki venjulegt árskort heldur Wild Card sem er dýrasta kortið kostar líka 7000 kr ísl. Fæ alltaf frítt inn og í tækin. Ég held að ég sé sú elsta sem hefur keypt þetta kort hingað til. Eini gallin við að eiga þetta kort er að ég þekki engan annan sem á svoleiðis, en mér er samt alveg sama. Ætla að vera dugleg að skella mér í hádegishléunum í skólanum.
Ekki má gleyma að ég keypti mér Jamie Oliver gashellu sem ég ætla að nota eins og óður maður í útileigunum i sumar. En auðvitað var nauðsynlegt að athuga hvort hún virkaði ekki svo farinn var ferð á ströndina með mat og bjór. Hellan stóð sér vel í núðluréttinum með risarækjunum. Svo var spilað frísbí sem nota bene ég er svakaleg efnileg í.
Á síðasta föstudag var mér og belgísku vinkonu minni boðið í japanskt tepartý hjá stráki sem við kynntumst í fyrsta áfanganum mínum í skólanum (hann er japanskur). Ég bjóst við að sitja með góðan tebolla og spjalla um daginn og veginn, mjög kasjúal.....EN NEI!! Við áttum að mæta klukkan 2 einhverstaður rétt fyrir utan borgina. Tekinn var lestin og þegar við gengum götuna sem húsið átti að vera á gerði ég mig grein fyrir að þetta var ekkert venjulegt teboð því þarna eru aðeins villur að stærstu gerð á dýrasta vegi sem hægt er að búa við (Strandvej). Þegar við komum að húsinu sáum við að þetta var haldið í Japanska sendiráðinu sem á klikkað húsnæði alveg við ströndina og í garðinum tehús. Þar tók á móti okkur japönsk kona í allri múnderingunni. Hún útskýrði fyrir okkur helstu reglur og hvernig þetta teboð átti að fara fram. Fyrst yrði haldin geniralprufa þar sem var í lagi að spyrja og tala saman...EN svo yrði alvöru teboðið haldið sem var mjög alvarlegt og þar má ekki tala heldur á maður að njóta umhverfishljóðanna og finna ró inn í sér. Jes...aðeins alvarlegra en ég hélt. Í geniralprufunni var ég þvílíkt að fylgjast með, taka niður punkta og spyrja um allt sem ég var í vafa um. Það sem maður þurfti að muna....hef aldrei hneigt mig jafn oft á jafn stuttum tíma. Er ekki frá því að ég hafi staðið mig svo bara ágætlega í alvarlega hlutanum fyrir utan það að ég gat ekki sitið eins og átti að sitja því ég var alveg blóðlaus í báðum löppunum og var næstum búin að fá krampa.
Hvað meira hmm...
Síðasta laugardag hittumst við íslendingarnir sem erum að læra landslagarkitektúr (erum 10 stk) í Dyrahaven (fallegur skógur rétt fyrir utan borgina) til að fara í picnic. Ég elska picnic J!!! Þar var borðað, spjallað, leikið og ég er ekki frá því að ég dottaði smá líka. Þar vorum við allan daginn til 8 um kvöldið. Svííííííííít dagur!!!
Það er alveg yndislegt að frétta af öllum. Mamma og pabbi eru að hafa það svoo gott. Pabbi er búin að vinna um 2 leytið hjólar alltaf í vinnuna eins og mútta. Pabbi segist alltaf verða benzínlaus á leiðinni heim og þá verður hann að stoppa og fá sér ein kaldan áður en getur haldið áfram. Það er frekar ljúft að vinna í Danmörku því þeir eru með 37 tíma vinnuviku staðin fyrir 40 heima.
Það er búið að vera klikkað gott veður síðustu daga. Í dag var hátt í 25 stiga hiti þótt það var skýjað og molla og spáin segir að þetta haldi svona áfram út vikuna.
Það styttist að skólinn klárast J jey!!!! Fyrsta árið mitt er að verða komið í höfn! Mig hlakkar svooooooo til að fara á Roskilde festival og svo heim 11. júní og hitta alla!!! Sjitt hvað ég sakna ykkar.
Núna er alveg að fara koma að því að ég hitti ykkur sykurpúðarnir mínir